Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fim 11. júlí 2024 14:00
Elvar Geir Magnússon
De Jong gæti þurft að leggjast undir hnífinn
Mynd: EPA
Hollenski miðjumaðurinn Frenkie de Jong hefur verið frá vegna ökklameiðsla síðan um miðjan apríl. Það var búist við því að hann gæti tekið þátt í EM en hann var ekki klár í tæka tíð.

Þessi miðjumaður Barcelona fór í læknisskoðun í gær og athygli vakti að vinstri ökkli hans virðist enn vera talsvert bólginn.

Sport segir að það komi betur í ljós á næstu dögum hvernig ökklinn bregst við auknu álagi. Ef það verða ekki framfarir þá neyðist hann til að fara í aðgerð sem gæti haldið honum frá í einhverja mánuði.

De Jong varð fyrir þremur ökklameiðslum á síðasta tímabili en hafði vonast til að geta hafið undirbúningstímabil undir stjórn nýja stjóran Hansi Flick af fullum krafti.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner