Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
banner
   fim 11. júlí 2024 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Immobile á leið til Tyrklands
Mynd: EPA
Ciro Immobile, framherji Lazio á Ítalíu, er á leið til tyrkneska félagsins Besiktas.

Immobile er 34 ára gamall sóknarmaður sem hefur átt fast sæti í liði Lazio síðan hann kom frá Torino fyrir átta árum.

Framherjinn hefur án nokkurs vafa verið þeirra mikilvægasti leikmaður síðustu ár. Þrisvar sinnum endaði hann markahæstur í Seríu A en öll þau ár var hann valinn í lið ársins.

Á síðustu leiktíð skoraði hann aðeins 7 mörk í deildinni og er Lazio nú tilbúið að leyfa honum að yfirgefa félagið.

Tyrkneska félagið Besiktas er að ganga frá viðræðum við Lazio en Immobile hefur þegar náð samkomulagi um kaup og kjör.

Hann mun gera tveggja ára samning við Besiktas sem hafnaði í 6. sæti deildarinnar á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner