Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
banner
   fim 11. júlí 2024 13:30
Elvar Geir Magnússon
„Leit meira út eins og ég geri hjá City“
Phil Foden.
Phil Foden.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Enski miðjumaðurinn Phil Foden telur að frammistaða sín í 2-1 sigrinum gegn Hollandi í gær hafi verið sín besta með enska landsliðinu.

„Mér finnst eins og þetta hafi verið minn besti leikur í landsliðstreyjunni svo ég er hæstánægður,“ segir Foden.

„Það hafa verið miklar bætingar í síðustu tveimur leikjum. Þessi staða hjálpar mér og ég er meira í boltanum, oftar að komast í hættuleg svæði."

„Ég naut þess að spila þennan leik. Ég var líkari sjálfum mér, meira eins og ég er hjá Manchester City. Ég var að finna svæði fyrir utan teiginn og ná inn skotum."

„Mér líður eins og úrslitaleikurinn á sunnudaginn verði minn stærsti leikur á ferlinum."

Úrslitaleikur Spánar og Englands verður klukkan 19 á sunnudagskvöld.
EM hringborðið - Efnilegar stórstjörnur og spennandi úrslitaleikur
Athugasemdir
banner
banner
banner