Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fim 11. júlí 2024 12:30
Elvar Geir Magnússon
Tvífari Southgate í þýsku lögreglunni slær í gegn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var mikil stemning í Dortmund í gær þar sem undanúrslitaleikur Englands og Hollands fór fram.

Einn þýskur lögregluþjónn sló í gegn hjá enskum stuðningsmönnum í aðdraganda leiksins en hann er tvífari landsliðsþjálfara Englands, hins umtalaða Gareth Southgate.

Hópur stuðningsmanna tók lagið fyrir lögreglumanninn og hefur myndband af því farið í mikla dreifingu á veraldarvefnum. Myndbandið má sjá hér að neðan.


EM hringborðið - Efnilegar stórstjörnur og spennandi úrslitaleikur
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner