Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   mán 19. ágúst 2024 19:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu markið: Mikael Neville á skotskónum í stórsigri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mikael Neville Anderson var í byrjunarliði AGF þegar liðið vann stórsigur á Vejle í dönsku deildinni í kvöld.


AGF var 3-1 yfir í hálfleik en Mikael kom AGF í 4-1 með marki eftir klukkutíma leik. AGF bætti við einu marki í viðbót. 5-1 lokatölur.

Liðið er í 4. sæti deildarinnar með 10 stig eftir fimm umferðir.

Róbert Orri Þorkelsson var í byrjunarliði Kongsvinger þegar liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Bryne í næst efstu deild í Noregi. Óskar Borgþórsson spilaði 79 mínútur þegar Sogndal tapaði 3-0 gegn Moss.

Kongsvinger er með 29 stig í 8. sæti eftir 19 umferðir en Sogndal er í 6. sæti með 30 stig.


Athugasemdir
banner
banner