Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   þri 20. ágúst 2024 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arsenal nær munnlegu samkomulagi við eftirmann Ramsdale
Mynd: EPA

Arsenal hefur náð munnlegu samkomulagi við spænska markvörðinn Joan Garcia um að ganga til liðs við félagið.


Garcia er markvörður Espanyol en hann lék 14 leiki með liðinu í næst efstu deild á síðustu leiktíð en liðið tryggði sér sæti í La Liga. Hann var í markinu þegar Eespanyol tapaði 1-0 gegn Valladolid í fyrstu umferð La Liga í gær.

Arsenal vill fá Garcia í sínar raðir ef Aaron Ramsdale yfirgefur félagið áður en félagaskiptaglugginn lokar.

Ramsdale hefur verið orðaður við Ajax og Wolves að undanförnu en hann hefur ekki verið í stóru hlutverki síðan David Raya gekk til liðs við félagið.

Espanyol veit af áhuga Arsenal en ekkert tilboð hefur enn borist frá enska félaginu.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner