Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   þri 20. ágúst 2024 10:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Nýr Kante á leið í ensku úrvalsdeildina
Mynd: Paris
West Ham hefur náð samkomulagi við Paris FC um kaup á miðjumanninum Mohamadou Kante.

Hann hefur samþykkt fimm ára samning við West Ham og er að klára læknisskoðun.

Hann er 18 ára og mun klára þetta tímabil á láni í París svo aðdáendur ensku úrvalsdeildarinnar þurfa að bíða í eitt ár til að sjá hann í deildinni.

Búist er við tilkynningu frá West Ham seinna í þessari viku.

Fyrr í sumar var West Ham orðað við N'Golo Kante en ákvað að horfa í aðra kosti á miðsvæðinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner