Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
banner
   þri 20. ágúst 2024 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sjáðu frábært mark Selmu Sólar
Mynd: Rosenborg

Selma Sól Magnúsdóttir snéri aftur til Rosenborg í sumar en hún lék með Nurnberg í Þýskalandi fyrri hluta árs.


Hún hafði verið í Rosenborg í rúm tvö ár áður en hún ákvað að færa sig yfir til Þýskalands en stoppaði ekki lengi þar.

Hún hefur nú leikið tvo leiki síðan hún snéri aftur til Noregs og hún hjálpaði liðinu að vinna Brann á dögunum.

Hún skoraði fyrra mark liðsins með glæsilegu skoti fyrir utan teig, stöngin inn, í 2-0 sigri. Sjáðu markið hér fyrir neðan.

Rosenborg er í 2. sæti deildarinnar með 37 stig eftir 17 umferðir en Valerenga er á toppnum með 48 stig en Rosenborg á leik til góða.


Athugasemdir
banner
banner
banner