Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   þri 20. ágúst 2024 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Vardy minnti stuðningsmenn Tottenham á titlaleysið
Mynd: EPA

Jamie Vardy skoraði jöfnunarmarkið þegar Leicester og Tottenham gerðu 1-1 jafntefli í síðasta leik fyrstu umferðar í ensku úrvalsdeildinni í gær.


Þessi magnaði framherji var tæpur fyrir leikinn en hann skoraði eftir tæpan klukkutíma leik og var tekinn af velli undir lok leiksins.

Hann hafði mjög gaman af því að espa stuðningsmenn Tottenham upp þegar hann gekk af velli. Hann benti þá á merki úrvalsdeildarinnar á treyjunni sinni og var með látbragð þar sem hann sýndi tölurnar einn og núll með fingrunum.

Þar var hann að vitna í það að hann hafi unnið úrvalsdeildina einu sinni en Tottenham aldrei unnið deildina.

Það virtist fara eitthvað í taugarnar á Cristian Romero varnarmanni Tottenham en þeir voru í einhverjum orðaskiptum á meðan Vardy gekk af velli.

Jamie Vardy telling Spurs fans they've won no Premier League titles
byu/RevertBackwards insoccer


Athugasemdir
banner
banner