Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   mið 21. ágúst 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Frá Bayer Leverkusen til Hull
Mynd: EPA
Hull City er að færast nær því að fá Gustavo Puerta frá Bayer Leverkusen í Þýskalandi.

Puerta er 21 árs gamall kólumbískur miðjumaður sem kom til Leverkusen frá Bogota á síðasta ári.

Hann spilaði tíu leiki með aðalliði Leverkusen á síðustu leiktíð er liðið varð deildar- og bikarmeistari.

Samkvæmt blaðamanninum Cesar Luis Merlo er Puerta á förum frá Leverkusen en hann er að ganga í raðir Hull City í ensku B-deildinni.

Gert er ráð fyrir að gengið verði frá samkomulagi á næstu dögum.

Puerta á 33 leiki að baki fyrir yngri landslið Kólumbíu og skorað þrjú mörk.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner