Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
banner
   mið 21. ágúst 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Gæti óvænt samið við keppinautinn
Mynd: EPA
Enski blaðamaðurinn Ben Jacobs segir að Al-Ittihad hafi verulegan áhuga á því að fá senegalska sóknarmanninn Sadio Mané frá keppinautum þeirra í Al-Nassr.

Á dögunum tjáði Karim Benzema, leikmaður Al Ittihad, félaginu að hann vildi fá Mané með sér í sóknarlínuna fyrir komandi tímabil.

Félagið hlustaði á Benzema og hefur nú hafið viðræður við Al Nassr um Mané.

Mané gerði frábærlega á fyrsta tímabili sínu með Al Nassr en hann skoraði 19 mörk og gaf 8 stoðsendingar.

Þetta yrðu sérstaklega mikil vonbrigði fyrir Cristiano Ronaldo, sem náði mjög vel saman með Mané í fremstu víglínu.
Athugasemdir
banner
banner
banner