Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   mið 21. ágúst 2024 10:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gallagher: Takk fyrir að láta drauma mína rætast
Mynd: Getty Images
Conor Gallagher, nýr leikmaður Atletico Madrid, hefur tjáð sig í kjölfar félagaskiptanna frá Chelsea til Atletico.

Hann er uppalinn hjá Chelsea og þakkar fyrir tíma sinn þar.

,Til allra hjá Chelsea, takk fyrir að láta drauma mína rætast. Það var algjör heiður í hvert einasta skipti sem ég klæddist treyjunni, og draumurinn rættist þegar ég var fyrirliði liðsns. Ég elskaði hvert einasta augnablik."

„Þessar minningar munu lifa til eilífðar. Ég kann að meta alla ástina og stuðninginn frá stuðningsmönnum. Að heyra nafn mitt sungið á Brúnni er sérstök tilfinning og borðinn sem þið settuð upp hefur heilmikla þýðingu fyrir mig."

„Takk fyrir allt. Ég óska félaginu alls hins besta í framtíðinni, og ég vonast til að sjá ykkur öll fljótlega á Stamford Bridge,"
segir Gallagher.
Athugasemdir
banner
banner
banner