Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
banner
   mið 21. ágúst 2024 07:30
Brynjar Ingi Erluson
U23 spilar tvo leiki í október
Mynd: KSÍ
U23 ára landslið kvenna spilar tvo æfingaleiki gegn Finnlandi í október en þetta kemur fram í tilkynningu KSÍ.

Á síðasta ári lék landsliðið fjóra leiki, tvo gegn Danmörku og tvo gegn Marokkó.

Báðir leikirnir gegn Dönum töpuðust en Ísland vann einn gegn Marokkó og gerði þá jafntefli í seinni leiknum.

U23 ára liðið spilar tvo leiki við Finnland í landsleikjaglugganum, en leikirnir fara fram í Finnlandi dagana 24. og 27. október.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner