Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   mið 21. ágúst 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Úlfarnir í viðræðum við Burnley um O'Shea
Mynd: Getty Images
Wolves er í viðræðum við Burnley um kaup á írska varnarmanninum Dara O'Shea.

Gary O'Neil, stjóri Wolves, er með það í forgangi að fá inn miðvörð áður en glugginn lokar en Wolves missti Max Kilman til West Ham United fyrr í glugganum.

Samkvæmt Sky Sports hefur Wolves hafið viðræður við B-deildarfélagið Burnley um hinn 25 ára gamla O'Shea.

Brentford hefur einnig átt í viðræðum við Burnley um varnarmanninn, en félagið er einnig að skoða aðra möguleika í stöðuna.

Írski landsliðsmaðurinn kom til Burnley frá WBA á síðasta ári en félagið greiddi þá um 7 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Athugasemdir
banner
banner