Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fim 22. ágúst 2024 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Annar sóknarmaður á förum frá Bournemouth
Mynd: Bournemouth
Sóknarmaðurinn Daniel Jebbison er á leið til Watford á láni frá Bournemouth út tímabilið.

Á dögunum seldi Bournemouth Dominic Solanke til Tottenham Hotspur fyrir metfé.

Félagið er nú að losa sig við annan framherja en þó aðeins tímabundið.

Jebbison er 21 árs gamall og kom til Bournemouth frá Sheffield United á frjálsri sölu í sumar.

Framherjinn lék aðeins einn leik með Sheffield United á síðustu leiktíð, en Bournemouth hafði alltaf ætlað sér að lána hann út svo hann gæti fengið meiri reynslu.

Hann er að ganga í raðir Watford á láni út tímabilið, en Watford spilar í ensku B-deildinni.

Watford hefur unnið báða leiki sína í deildinni á nýju tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner