Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fim 25. júlí 2024 11:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man Utd skoðar leikmannaskipti við Inter
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
The Athletic fjallar um það í dag að Manchester United sé að kanna möguleikann á því að gera leikmannaskipti við Inter.

Ítalska félagið fengi Aaron Wan-Bissaka frá United og Denzel Dumfries færi frá Inter til Englands. Wan-Bissaka er fæddur árið 1997 en Dumfries er árinu eldri.

Sagt er að Wan-Bissaka hafi hafnað möguleikanum á því að fara til West Ham og sé meira til í því að fara til ítölsku meistaranna.

Wan-Bissaka verður samningslaus næsta sumar og er hann kostur númer tvö í hægri bakvarðarstöðuna hjá United á eftir Diogo Dalot.

Manchester United hefur einnig verið orðað við Noussair Mazraoui hjá Bayern Munchen.
Athugasemdir
banner
banner
banner