Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fim 25. júlí 2024 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
West Ham nær samkomulagi við Bayern
Noussair Mazraoui.
Noussair Mazraoui.
Mynd: Getty Images
West Ham hefur komist að samkomulagi við Bayern München um kaupverð á bakverðinum Noussair Mazraoui.

Það er Sky Sports í Þýskalandi sem greinir frá þessu.

Kaupverðið er í kringum 13 milljónir punda en svo gæti það hækkað í 16,4 milljónir punda síðar meir.

Mazraoui, sem hefur einnig verið orðaður við Manchester United, er einnig sagður vera með munnlegt samkomulag við West Ham um persónuleg kaup og kjör.

Það á enn eftir að klára ákveðin smáatriði en það bendir til þess núna að Mazraoui, sem er 26 ára gamall, verði leikmaður West Ham.
Athugasemdir
banner
banner