Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fös 26. júlí 2024 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Casadei eftirsóttur - Fiorentina í sambandi við Chelsea
Mynd: EPA
Ítalski miðjumaðurinn Cesare Casadei er eftirsóttur og hefur Fiorentina sett sig í samband við Chelsea til að fá hann á lánssamningi.

Fiorentina er eitt af þremur eða fjórum félagsliðum sem hafa áhuga á Casadei, en leikmaðurinn er 21 árs gamall og kom við sögu í ellefu úrvalsdeildarleikjum á seinni hluta síðasta tímabils eftir að hafa spilað 25 leiki á láni hjá Leicester fyrir áramót.

Casadei á fjögur ár eftir af samningi sínum við Chelsea eftir að hafa gengið til liðs við félagið úr röðum Inter fyrir tveimur árum síðan.

Miðjumaðurinn hefur verið lykilmaður upp yngri landslið Ítalíu og skoraði til að mynda 8 mörk í 9 leikjum með U20 liðinu, en hefur í heildina gert 16 mörk í 41 landsleik.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner