Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fös 26. júlí 2024 21:16
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Dovbyk spenntur fyrir Roma - Samningstilboð Atletico ekki gott
Mynd: EPA
Atletico Madrid hafði verið í viðræðum við Girona um kaup á úkraínska framherjanum Artem Dovbyk en hann er ekki spenntur fyrir því að ganga til liðs við Madrídarliðið.

Alex Lundovsky, umboðsmaður Dovbyk, greindi frá því í samtali við úkraínska fjölmiðla að samningstilboð Atletico hafi verið langt frá öðrum tilboðum.

Roma hefur blandað sér í baráttuna um leikmanninn sem skoraði 24 mörk fyrir Girona þegar liðið hafnaði í 3. sæti spænsku deildarinnar á næstu leiktíð.

Dovbyk hefur gefið ítalska liðinu grænt ljós um að hann vilji ganga til liðs við félagið.


Athugasemdir
banner
banner
banner