Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
banner
   fös 26. júlí 2024 23:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guardiola: Myndi elska það að vera áfram
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola stjóri Manchester City svaraði spurningum um framtíð sína hjá félaginu í kvöld en hann á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum.

Guardiola sagði í viðtali við Sky Sports fyrr á þessu ári að hann væri nálægt því að yfirgefa félagið.

„Þegar ég er að fara mun ég segja það. Við sjáum til hvað gerist en ég hendi því ekki af borðinu að ég muni framlengja, ég myndi elska að vera áfram," sagði Guardiola í kvöld.

„Ég er búinn að vera hjá Manchester City í átta ár, ég er ekki að fara vera hérna í átta ár í viðbót, þess vegna er ég nær því að fara en að vera en ég sagðist ekki vera að fara."


Athugasemdir
banner