Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
banner
   lau 27. júlí 2024 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Endrick fetar í fótspor Casemiro og James Rodriguez
Mynd: Getty Images

Endrick verður formlega kynntur sem leikmaður Real Madrid í dag en spænska félagið staðfesti í desember 2022 að hann væri orðinn leikmaður félagsins.

Hann gat hins vegar ekki skipt formlega yfir frá Palmeiras fyrr en hann væri orðinn 18 ára gamall. Hann náði 18 ára aldri þann 21. júlí síðastliðinn.


Hann mun feta í fótspor Casemiro, Mateo Kovacic og James Rodriguez en hann hefur ákveðið að spila í treyju númer 16 hjá spænska félaginu.

Hann þekkir það númer vel en hann hóf atvinnumannaferil sinn í treyju númer 16 hjá Palmeiras.

Þessi 18 ára gamli framherji skoraði 21 mark í 79 leikjum fyrir Palmeiras. Þá hefur hann spilað 10 landsleiki fyrir hönd Brasilíu og hefur skorað þrjú mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner