Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
   fim 29. ágúst 2024 22:47
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arsenal í viðræðum við Bournemouth um Neto
Mynd: EPA

Arsenal hefur sett sig í samband við Bournemouth en félagið hefur áhuga á brasilíska markverðinum Neto.


Þessi 35 ára gamli markvörður hefur spilað 61 leik síðustu tvö tímabil í úrvalsdeildinni síðan hann gekk til liðs við félagið frá Barcelona. Þá hefur hann spilað alla þrjá leiki liðsins til þessa í ár.

Arsenal er í leit að markverði þar sem Aaron Ramsdale er á förum til Southampton.

Lundúnarfélagið hefur einnig verið í viðræðum við Espanyol um Joan Garcia svo tveir markmenn gætu gengið til liðs við félagið á lokadegi félagaskiptagluggans á morgun en það er þó líklegast að Neto fari til félagsins.

Kepa Arrizabalaga gekk til liðs við Bournemouth á láni frá Chelsea í dag.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner