Áhugi Liverpool á Musiala eykst - Arsenal og Newcastle hafa áhuga á Sane - Simons orðaður við Man Utd
banner
   fim 29. ágúst 2024 23:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Juventus hættir að eltast við Sancho
Mynd: Getty Images

Juventus hefur dregið sig úr baráttunni um Jadon Sancho leikmann Manchester United.


Gianluca Di Marzio hjá Sky Sports á ítalíu greinir frá þessu en hann sagði frá því í gær að ítalska félagið ætlaði að setja allt púður í að fá Sancho eftir að Federico Chiesa gekk til liðs við Liverpool.

Hann segir að Juventus hafi tekið þessa ákvörðun þar sem hinn tvítugi Samuel Mbangula muni ekki fá jafnmörg tækifæri í samkeppni við Sancho en Mbangula hefur þegar skorað eitt mark í fyrstu tveimur leikjum Juventus á tímabilinu.

Sancho hefur verið orðaður við Chelsea undanfarið en hann hefur ekki verið í leikmannahópi United í fyrstu tveimur leikjum liðsins í úrvalsdeildinni.


Athugasemdir
banner
banner