Jesus gæti farið frá Arsenal - Möguleg stjóraskipti hjá Man Utd og Bayern - Dortmund vill halda Sancho
   sun 29. september 2019 13:42
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gary Martin fer á láni til Darlington ef hann verður enn í ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gary Martin, markahæsti leikmaður Pepsi Max-deildarinnar 2019, mun að öllu óbreyttu spila með ÍBV í Inkasso-deildinni á næstu leiktíð.

Hann stefnir á það að fara á láni í janúar.

„Í janúar verð ég að fara á lán ef ég verð enn leikmaður ÍBV - allt getur gerst. Það er hluti af samningnum mínum við ÍBV að ég megi fara á láni," sagði Gary í Innkastinu.

Hann mun fara á lán til Darlington, sem er félagið í hans heimabæ í Englandi.

„Ef ég verð enn leikmaður ÍBV í janúar þá fer ég á láni til Darlington og ég kem aftur til Eyja 1. apríl."

Vill hann vera áfram á ÍBV.

„Ég verð ekki reiður ef ég verð hjá ÍBV í Inkasso-deildinni á næsta tímabili, ég mun skemmta mér í Inkasso. Við munum sjá til, það getur allt gerst í fótbolta."

„Ég vil fyrst fara til Darlington og skora mörk. Ég hlakka til."

Sjá einnig:
„Gary Martin ekki fenginn sem fjáröflun"
Innkastið - Gestagangur í hátíðarútgáfu
Athugasemdir
banner
banner
banner