Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   mán 19. ágúst 2024 17:12
Kári Snorrason
Byrjunarlið FH og Vals: Heimir gerir 5 breytingar - Kristján Flóki byrjar
Heimir gerir 5 breytingar
Heimir gerir 5 breytingar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kristján Flóki spilar sinn fyrsta leik fyrir FH í sjö ár
Kristján Flóki spilar sinn fyrsta leik fyrir FH í sjö ár
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Klukkan 18:00 hefst viðureign FH og Vals í Kaplakrika. Leikurinn er liður í 19. umferð Bestu-deildar karla. Búið er að tilkynna byrjunarliðin.

Lestu um leikinn: FH 2 -  2 Valur

Heimir Guðjónsson gerir fimm breytingar á liði sínu frá síðasta leik.
Inn í byrjunarliðið koma þeir Kristján Flóki, Ingimar Stöle, Ólafur Guðmundsson, Bjarni Guðjón og Baldur Kári.
Kristján Flóki kom til FH frá KR nú á dögunum og spilar sinn fyrsta leik fyrir FH síðan 2017.
Böðvar Böðvarson er í leikbanni vegna uppsafnaðra spjalda og er því ekki í leikmannahóp FH í dag.

Túfa gerir tvær breytingar á liði sínu frá 0-2 tapi gegn Breiðabliki.
Inn í byrjunarliðið koma þeir Hólmar Örn og Sigurður Egill. Úr byrjunarliði Vals víkja þeir Jakob Franz og Hörður Ingi.

Byrjunarliðin má sjá í heild sinni hér fyrir neðan.


Byrjunarlið FH:
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
2. Ingimar Torbjörnsson Stöle
4. Ólafur Guðmundsson
7. Kjartan Kári Halldórsson
9. Sigurður Bjartur Hallsson
10. Björn Daníel Sverrisson (f)
16. Bjarni Guðjón Brynjólfsson
23. Ísak Óli Ólafsson
33. Kristján Flóki Finnbogason
34. Logi Hrafn Róbertsson
37. Baldur Kári Helgason

Byrjunarlið Valur:
31. Ögmundur Kristinsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
6. Bjarni Mark Antonsson
8. Jónatan Ingi Jónsson
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
11. Sigurður Egill Lárusson
12. Tryggvi Hrafn Haraldsson
15. Hólmar Örn Eyjólfsson (f)
20. Orri Sigurður Ómarsson
23. Gylfi Þór Sigurðsson
Athugasemdir
banner
banner
banner