Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
banner
   mán 19. ágúst 2024 10:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lookman ekki í hóp út af áhuga frá PSG
Ademola Lookman.
Ademola Lookman.
Mynd: EPA
Ademola Lookman er ekki hluti af leikmannahópi Atalanta fyrir leikinn gegn Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Lookman, sem var hetja Atalanta í úrslitaleik Evrópudeildarinnar, á síðustu leiktíð er undir smásjá franska stórliðsins Paris Saint-Germain.

Lookman hefur tjáð Atalanta það að hann vilji ekki vera í hópnum út af áhuga PSG.

PSG á þá enn eftir að leggja fram formlegt tilboð í leikmanninn.

Lookman, sem er 26 ára, fann sig ekki hjá Everton og Fulham á Englandi en hann hefur leikið afar vel eftir að hann gekk í raðir Atalanta sumarið 2022.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner