Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   mán 19. ágúst 2024 10:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Upphaflega skotmark Chelsea ekki í hópnum en Felix verður með
Samu Omorodion tekur ekki þátt í leiknum í kvöld.
Samu Omorodion tekur ekki þátt í leiknum í kvöld.
Mynd: EPA
Joao Felix verður með. Hann var á láni hjá Barcelona í fyrra.
Joao Felix verður með. Hann var á láni hjá Barcelona í fyrra.
Mynd: EPA
Atletico Madrid mætir Villarreal í fyrstu umferð spænsku La Liga í kvöld. Það eru tveir Chelsea tengdir molar varðandi leikmannahóp Atletico í kvöld.

Samu Omrodion er ekki í leikmannahópnum, en Joao Felix verður með í kvöld.

Felix er skotmark Chelsea í skiptidíl þar sem Conor Gallagher fer frá Chelsea til Atletio. Vandamálið í þeim skiptidíl er að Atletico metur Felix á hærri upphæð en Chelsea vill fá fyrir Gallagher.

Félagaskipti Gallagher til Atletico hafa legið í loftinu síðustu vikurnar. Upphaflega ætlaði Chelsea að fá hinn tvítuga Omoridion í sínar raðir en þau félagaskipti gengu ekki eftir.
Athugasemdir
banner
banner
banner