Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   mið 21. ágúst 2024 15:09
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterling og Chilwell æfa einir - Hreinskilinn í svörum með þá
Raheem Sterling.
Raheem Sterling.
Mynd: EPA
Enzo Maresca, stjóri Chelsea, hefur greint frá því að Raheem Sterling sé ekki að æfa með liðinu og hann sé ekki í sínum plönum.

Sterling var utan hóps í fyrsta deildarleik Chelsea gegn Manchester City á dögunum. Hann var verulega ósáttur við það og teymið í kringum hann sendi frá sér yfirlýsingu út af því áður en leikurinn gegn City hófst.

Núna er útlit fyrir að Sterling sé búinn að spila sinn síðasta leik fyrir Lundúnafélagið.

„Ég er ekki að segja að Raheem sé ekki góður leikmður en ég vil annars konar kantmann," sagði Maresca í dag.

Ben Chilwell æfir einnig einn og má yfirgefa félagið.

„Við erum með stóran hóp og það er ómögulegt að gefa öllum mínútur. Það er betra ef þeir fara. Ég reyni að vera hreinskilinn."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner