New York City 1 - 1 Inter Miami
0-1 Leonardo Campana ('75)
1-1 James Sands ('95)
0-1 Leonardo Campana ('75)
1-1 James Sands ('95)
New York City tók á móti Inter Miami í fyrsta leik kvöldsins í norður-amerísku MLS deildinni og var staðan markalaus eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik.
Leonardo Campana tók forystuna fyrir gestina frá Miami í síðari hálfleik, eftir undirbúning frá stórstjörnunum Jordi Alba og Lionel Messi, og var staðan 0-1 allt þar til seint í uppbótartíma.
Þá tókst James Sands að jafna metin fyrir heimamenn í New York og urðu lokatölur 1-1.
Inter hefur átt magnað deildartímabil og er í langefsta sæti austurhluta MLS deildarinnar fyrir úrslitakeppnina.
New York er í sjötta sæti og í góðri stöðu fyrir úrslitakeppnina.
“DON’T BE PLASTIC! SUPPORT YOUR LOCAL CLUB” NYCFC tifo vs Miami
byu/Expensive-Slide7821 inMLS
Athugasemdir