Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Getur orðið besti framherjinn í þessari deild"
Kvenaboltinn
Sonja Björg er stæðilegur framherji.
Sonja Björg er stæðilegur framherji.
Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Sonja Björg Sigurðardóttir átti frábæran leik í liði Þór/KA þegar Norðankonur lögðu Víking í Bestu deild kvenna í gær.

Sonja er fædd árið 2006 en hún steig sín fyrstu skref í meistaraflokki með Þór/KA og Völsungi árið 2022. Hún skoraði sitt annað mark á tímabilinu í gær en Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þór/KA, hrósaði henni í hástert eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Þór/KA 4 -  1 Víkingur R.

„Sonja Björg getur gert það sem hún vill og getur orðið besti framherjinn í þessari deild, það er engin spurning. Framfarirnar hjá henni eru eftirtektaverðar,"

„Hún er búin að leggja gríðarlega mikið á sig til að komast þangað sem hún er. Hún kemst miklu lengra, þakið er hátt á henni."

Sandra María Jessen, fyrirliði Þór/KA, hrósaði liðsfélaga sínum einnig.

„Hún er rosalega kraftmikill og góður leikmaður, erfitt að eiga við hana, með gríðarlegan líkamsstyrk og getur haldið leikmönnum frá sér. Hún er góð í að batta niður. Hún er efnilegur leikmaður sem verður gaman að fylgjast með á næstu árum og gott að hafa hana í okkar röðum."
Jóhann Kristinn: Formið á henni er ekkert eðlilegt
Sandra á leið á EM: Rosa gott fyrir hausinn
Athugasemdir
banner