Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
banner
   fös 23. ágúst 2024 19:30
Brynjar Ingi Erluson
Barcelona lánar Lenglet til Atlético
Mynd: Getty Images
Franski miðvörðurinn Clement Lenglet er á leið til Atlético Madríd á láni frá Barcelona.

Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur eytt síðustu tveimur tímabilum á láni í ensku úrvalsdeildinni, en fyrra tímabilið spilaði hann með Tottenham og þá lék hann með Aston Villa á síðustu leiktíð.

Frakkinn er ekki í myndinni hjá Hansi Flick og hefur því fengið að yfirgefa félagið á láni.

Fabrizio Romano sagði frá því í dag að Atlético Madríd væri búið að ná samkomulagi við Barcelona um að fá Lenglet á láni út tímabilið.

Atlético mun greiða stærstan hluta launa leikmannsins á tímabilinu, en þarf ekki að greiða sérstaklega fyrir lánið. Ekkert kaupákvæði er í samningnum.

Lenglet framlengdi um leið samning sinn við Barcelona til 2027, en hann mun nú halda í læknisskoðun hjá Atlético áður en hann verður kynntur.
Athugasemdir
banner
banner
banner