Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fös 23. ágúst 2024 22:38
Brynjar Ingi Erluson
Napoli leggur fram tilboð í McTominay
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Napoli hefur lagt fram rúmlega 20 milljóna punda tilboð í Scott McTominay, leikmann Manchester United á Englandi, en þetta segir ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio.

Napoli stefnir á að loka glugganum með stæl en félagið hefur þegar náð samkomulagi við Chelsea um Romelu Lukaku og þá er Billy Gilmour á leiðinni frá Brighton.

Samkvæmt Di Marzio hefur Napoli einnig lagt fram 20 milljóna punda tilboð í McTominay, sem er frjálst að yfirgefa Manchester United fyrir gluggalok.

McTominay er 27 ára gamall og verið á mála hjá Manchester United frá blautu barnsbeini.

Einnig kemur fram í grein Di Marzio að Napoli vill fyrst klára kaupin á McTominay áður en það fær Gilmour.

Kaupin gætu orðið fleiri hjá Napoli en það veltur á mögulegri sölu nígeríska framherjans Victor Osimhen, sem hefur verið orðaður við Chelsea og Paris Saint-Germain í sumar. Hann er metinn á 100 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner