Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fös 23. ágúst 2024 20:56
Brynjar Ingi Erluson
PSG spjarar sig vel án Mbappe
Mynd: EPA
Franska liðið Paris Saint-Germain slátraði Montpellier, 6-0, í annarri umferð frönsku deildarinnar í kvöld.

Stórstjarna PSG síðustu ár, Kylian Mbappe, yfirgaf félagið í sumar og samdi við Real Madrid.

Liðið var byggt í kringum franska landsliðsmanninn, en því virðist vegna ágætlega án hans.

Bradley Barcola skoraði tvö fyrir PSG og þá komust þeir Achraf Hakimi, Marco Asensio, Warren Zaire-Emery og Lee Kang-In einnig á blað.

Joao Neves og Ousmane Dembele voru báðir með tvær stoðsendingar í leiknum.

PSG hefur unnið báða leiki sína í deildinni og er með markatöluna 10-1.
Athugasemdir
banner
banner
banner