Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   lau 24. ágúst 2024 18:13
Brynjar Ingi Erluson
Alvöru innkoma hjá Trossard - Raya með magnaða vörslu
David Raya átti stórglæsilega vörslu
David Raya átti stórglæsilega vörslu
Mynd: Getty Images
Leandro Trossard kom inn af bekknum og skoraði tæpum tveimur mínútum síðar
Leandro Trossard kom inn af bekknum og skoraði tæpum tveimur mínútum síðar
Mynd: EPA
David Raya, markvörður Arsenal, átti heimsklassavörslu í leik liðsins gegn Aston Villa á Villa-Park í dag.

Leikurinn hefur boðið upp á mikla spennu og nóg af færum, sérstaklega Villa megin.

Ollie Watkins fékk algert dauðafæri til að skora snemma í síðari hálfleiknum. Amadou Onana átti ágætis skot og þurfti Raya að bakka áður en hann skutlaði sér á eftir boltanum sem hafnaði í þverslánni.

Boltinn datt aftur út fyrir Watkins sem var einn og óvaldaður fyrir framan markið. Hann skallaði boltanum hægra megin á markið, en Raya var fljótur að fleygja sér í hornið og varði meistaralega.

Sjáðu vörsluna hér

Mikilvæg værsla hjá Raya og nú er Arsenal komið yfir eftir mark varamannsins Leandro Trossard, sem skoraði með föstu skoti í hægra hornið á 67. mínútu.

SJáðu markið hjá Trossard
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner