Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   lau 24. ágúst 2024 15:23
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Aston Villa og Arsenal: Timber byrjar
Mynd: Getty Images
Aston Villa og Arsenal eigast við í áhugaverðum slag í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hafa byrjunarliðin verið tilkynnt.

Unai Emery gerir enga breytingu á byrjunarliði Villa sem vann á útivelli gegn West Ham í fyrstu umferð, þar sem Ollie Watkins leiðir sóknarlínuna með Leon Bailey, Morgan Rogers og John McGinn fyrir aftan sig. Jhon Durán byrjar þá á bekknum en hann kom inn gegn West Ham og skoraði sigurmarkið.

Mikel Arteta gerir eina breytingu á liði Arsenal sem sigraði gegn Wolves í fyrstu umferð. Jurriën Timber kemur inn í vinstri bakvarðarstöðuna fyrir Oleksandr Zinchenko sem sest á bekkinn.

Timber, sem missti af síðustu leiktíð vegna meiðsla, fær það hlutverk að dekka hinn öskufljóta Leon Bailey úti á kantinum.

Gabriel Jesus dettur úr leikmannahópinum vegna meiðsla.

Aston Villa: Martinez, Cash, Konsa, Torres, Digne, Onana, Tielemans, McGinn, Bailey, Rogers, Watkins.
Varamenn: Gauci, Diego Carlos, Maatsen, Nedeljkovic, Barkley, Buendia, Jaden, Ramsey, Duran.

Arsenal: Raya, White, Saliba, Gabriel, Timber, Partey, Rice, Odegaard, Saka, Martinelli, Havertz.
Varamenn: Ramsdale, Zinchenko, Kiwior, Calafiori, Jorginho, Nelson, Nwaneri, Trossard, Nketiah.
Athugasemdir
banner
banner