Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   lau 24. ágúst 2024 16:33
Ívan Guðjón Baldursson
Championship: Arnór gerði sigurmarkið - Sunderland lagði Burnley
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Sunderland og Watford deila toppsæti Championship deildarinnar eftir þrjá sigra í röð á nýju deildartímabili.

Romaine Mundle skoraði eina mark leiksins er Sunderland lagði Burnley að velli með verðskulduðum 1-0 sigri.

Watford sigraði þá gegn Derby County, þar sem Moussa Sissoko, fyrrum leikmaður Newcastle og Tottenham, gerði sigurmarkið í 2-1 sigri.

Arnór Sigurðsson kom inn af bekknum og skoraði sigurmarkið er Blackburn Rovers sigraði 2-1 gegn Oxford United.

Blackburn er í þriðja sæti með 7 stig eftir þennan sigur.

West Bromwich Albion og Preston North End sigruðu sína leiki í dag á meðan Norwich og Sheffield United skildu jöfn.

Stefán Teitur Þórðarson var á sínum stað í byrjunarliði Preston sem lagði Luton Town að velli.

Þetta er fyrsti sigur Preston á nýju deildartímabili og er liðið því með þrjú stig eftir þrjár fyrstu umferðirnar.

Sunderland 1 - 0 Burnley
1-0 Romaine Mundle ('26 )
Rautt spjald: Dan Neill, Sunderland ('85)

Watford 2 - 1 Derby County
0-1 Ebou Adams ('2 )
1-1 Vakoun Issouf Bayo ('31 )
2-1 Moussa Sissoko ('76 )

Bristol City 1 - 1 Coventry
1-0 George Tanner ('45 )
1-1 Kasey Palmer ('76 )

Hull City 0 - 0 Millwall

QPR 1 - 1 Plymouth
1-0 Michael Frey ('3 )
1-1 Morgan Whittaker ('28 )
Rautt spjald: ,Adam Forshaw, Plymouth ('29)Frederick Issaka, Plymouth ('90)

Blackburn 2 - 1 Oxford United
0-1 Mark Harris ('44 )
1-1 Joe Rankin-Costello ('45 )
2-1 Arnor Sigurdsson ('83 )

Middlesbrough 2 - 2 Portsmouth
0-1 Christian Saydee ('2 )
1-1 Matt Clarke ('11 )
1-2 Christian Saydee ('25 )
2-2 Tommy Conway ('90 , víti)

Norwich 1 - 1 Sheffield Utd
1-0 Josh Sargent ('22 )
1-1 Ollie Arblaster ('32 )

Preston NE 1 - 0 Luton
1-0 Will Keane ('39 )

Stoke City 1 - 2 West Brom
0-1 Karlan Grant ('18 )
1-1 Lewis Koumas ('29 )
1-2 Josh Maja ('31 )
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner