Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   lau 24. ágúst 2024 11:09
Ívan Guðjón Baldursson
Christensen meiddur - Strax meiðslavandræði í varnarlínunni
Mynd: EPA
Danski miðvörðurinn Andreas Christensen er meiddur og missir af næsta mánuði með Barcelona.

Þetta hjálpar ekki Börsungum að glíma við meiðslavandræði sem hafa nú þegar skapast í varnarlínunni á undirbúningstímabilinu eftir að Ronald Araújo varð einnig fyrir meiðslum.

Christensen og Araújo verða því ekki með Barca næstu vikurnar og eru Clément Lenglet og Mikayil Faye á leið burt.

Pau Cubarsí, Eric García og Inigo Martinez eru því einu miðverðirnir sem eru eftir í leikmannahópi Barca.

Barcelona byrjaði tímabilið á sigri á útivelli gegn Valencia en á heimaleik gegn Athletic Bilbao í dag.
Athugasemdir
banner
banner