Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
banner
   lau 24. ágúst 2024 14:44
Ívan Guðjón Baldursson
Einkunnir Brighton og Man Utd: Welbeck bestur og Mount verstur
Mynd: EPA
Mynd: Getty Images
Brighton lagði Manchester United að velli er liðin mættust í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni og hefur Sky Sports gefið leikmönnum einkunnir.

Markaskorararnir Danny Welbeck og Joao Pedro voru bestu menn vallarins með 8 í einkunn en Mason Mount, miðjumaður Manchester United sem fór meiddur af velli í hálfleik, verstur.

Mount fær 5 í einkunn frá Sky og er óljóst hvort um alvarleg meiðsli sé að ræða eða ekki.

Allir aðrir leikmenn Brighton fengu 7 í einkunn nema varamennirnir. Amad Diallo var þá eini leikmaður Man Utd sem fékk 7 fyrir sinn þátt, en hann skoraði eina mark liðsins í tapinu.

Brighton: Steele (7); Veltman (7), Van Hecke (7), Dunk (7), Hinshelwood (7); Milner (7), Gilmour (7); Minteh (6), Pedro (8), Mitoma (7); Welbeck (8).
Varamenn: Baleba (6),Enciso (6)

Man Utd: Onana (6); Mazraoui (6), Maguire (6), Martinez (6), Dalot (6); Casemiro (6), Mainoo (6); Amad (7), Mount (5), Rashford (6); Fernandes (6).
Varamenn: Zirkzee (6), Garnacho (6), De Ligt (6), McTominay (6)
Athugasemdir
banner
banner
banner