Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   lau 24. ágúst 2024 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Leeds fær Solomon á láni frá Tottenham
Mynd: EPA
Ísraelski landsliðsmaðurinn Manor Solomon er við það að ganga í raðir Leeds United á láni frá Tottenham Hotspur.

Solomon er 25 ára gamall sóknarsinnaður leikmaður sem kom til Tottenham á frjálsri sölu frá Fulham á síðasta ári.

Hann kom að tveimur mörkum í fimm leikjum sínum í ensku úrvalsdeildinni með Tottenham, en meiddist illa á hné og missti þar af leiðandi af stærstum hluta tímabilsins.

Samkvæmt blaðamanninum Paul O'Keefe mun Solomon leika með Leeds á tímabilinu, en hann er á leið til félagsins á láni.

Solomon ferðast til Leeds í dag til að gangast undir læknisskoðun, en hann kemur til með að styrkja hópinn gríðarlega.

Leeds er með fimm stig eftir þrjá leiki í ensku B-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner