Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   lau 24. ágúst 2024 14:00
Ívan Guðjón Baldursson
Móðir Amad Diallo lést í gær
Mynd: EPA
Kantmaðurinn efnilegi Amad Diallo var í byrjunarliði Manchester United í dag og skoraði eina mark liðsins í 2-1 tapi gegn Brighton.

Diallo tileinkaði stjúpmóður sinni markið eftir að hún lést í gær, en Diallo ólst upp með henni og leit á hana sem móður sína.

Diallo er aðeins 22 ára gamall en hann vildi fá að spila í dag þrátt fyrir að hafa heyrt fregnirnar.

Þetta eru miklar sorgarfréttir fyrir Diallo, sem er fæddur í Fílabeinsströndinni en flutti ungur með föður sínum til Ítalíu þar sem hann ólst upp og lék með Atalanta áður en hann var keyptur til Manchester.


Athugasemdir
banner
banner
banner