Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
banner
   lau 24. ágúst 2024 14:28
Ívan Guðjón Baldursson
Welbeck kominn með fimm úrvalsdeildarmörk gegn Man Utd
Mynd: EPA
Danny Welbeck var í byrjunarliði Brighton og skoraði annað marka liðsins í 2-1 sigri gegn uppeldisfélagi sínu Manchester United í dag.

Þetta var fimmta úrvalsdeildarmarkið sem Welbeck skorar gegn Man Utd á sínum ferli og er hann þar með orðinn sá fyrrum leikmaður Rauðu djöflanna sem hefur skorað flest úrvalsdeildarmörk gegn þeim.

Welbeck, sem er 33 ára gamall, hefur farið vel af stað á nýju tímabili með Brighton og er kominn með tvö mörk og eina stoðsendingu eftir tvær fyrstu umferðirnar á nýju úrvalsdeildartímabili.

Welbeck lék fyrir Arsenal í fimm ár áður en hann fór til Watford og skipti loks til Brighton fyrir tæpum fjórum árum.
Athugasemdir
banner
banner
banner