Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 24. október 2020 13:31
Aksentije Milisic
Championship: Bournemouth jafnaði í uppbótartíma gegn Watford
Mynd: Getty
Watford 1 - 1 Bournemouth
1-0 Stipe Perica ('12 )
1-1 Christopher Mepham ('90 )

Einum leik er lokið í Championship deildinni á Englandi í dag.

Liðin sem voru í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili mættust í fyrsta leik dagsins þegar Watford fékk Bournemouth í heimsókn.

Stipe Peirca kom heimamönnum yfir eftir 12. mínútna leik en hann skoraði þá eftir sendingu frá Isamial Sarr. Þegar allt stefndi í sigur Watford þá jöfnuðu gestirnir þegar sjö mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Það var Cristopher Mepham sem skoraði.

Watford er í 2. sæti deildarinnar með 14 stig eftir sjö leiki en Bournemouth er í því fjórða með 13 stig.
Athugasemdir
banner
banner