Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
banner
   fim 25. júlí 2024 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Leipzig hafnar tilboði frá Barcelona í Dani Olmo
Mynd: EPA
Sky Sports greinir frá því að Barcelona hafi lagt fram kauptilboð fyrir Dani Olmo í gær en RB Leipzig hafi hafnað því fljótt.

Leipzig er tilbúið til að selja Olmo fyrir rétta upphæð en stjórnendur félagsins eru sagðir hafa verið ósáttir með hvernig kauptilboðinu frá Barcelona var háttað.

Tilboðið hljóðaði upp á rúmlega 60 milljónir evra í heildina, með einungis 40 öruggar milljónir og hinar 20 í árangurstengdum aukagreiðslum.

Stjórnendur Leipzig eru ekki ánægðir með aukagreiðslurnar en gætu þó verið tilbúnir til að selja leikmanninn fyrir 60 milljónir.

Dani Olmo er 26 ára sóknartengiliður sem skein skært með spænska landsliðinu á EM í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner