Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fim 25. júlí 2024 11:30
Elvar Geir Magnússon
Smith Rowe færist nær Fulham
Smith Rowe er 23 ára gamall.
Smith Rowe er 23 ára gamall.
Mynd: Getty Images
Enski miðjumaðurinn Emile Smith Rowe færist nær því að ganga í raðir Fulham en Mikel Arteta lét leikmanninn ekki spila í æfingaleik Arsenal gegn Bournemouth í Bandaríkjunum.

Guardian segir að hjá Fulham séu menn bjartsýnir á að ná samkomulagi. 30 milljóna punda tilboði félagsins var hafnað í síðustu viku en nýtt tilboð upp á 35 milljónir punda með ákvæðum var lagt fram.

Samblanda af samkeppninni hjá Arsenal og meiðslum hafa hamlað spiltíma Smith Rowe. Síðustu tvö ár hefur hann bara byrjað þrjá úrvalsdeildarleiki.

Arteta sagði eftir leikinn gegn Bournemouth að það væru hlutir í gangi bak við tjöldin og þjálfarateymið hafi talið best að leikmaðurinn myndi ekki taka þátt í leiknum.

Crystal Palace hefur líka áhuga á Smith Rowe en talið er að ef hann verður seldur muni Arsenal gera tilboð í spænska landsliðsmanninn Mikel Merino hjá Real Sociedad.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner