Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fös 26. júlí 2024 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Aston Villa vill meiri pening fyrir Durán
Mynd: Aston Villa
West Ham United er í viðræðum við Aston Villa um kaup á kólumbíska framherjanum Jhon Durán, sem var meðal annars orðaður við Chelsea fyrr í sumar.

Aston Villa vill fá 40 milljónir punda fyrir Durán og hefur hafnað tveimur tilboðum frá West Ham í leikmanninn. Seinna tilboðið hljóðaði upp á 32 milljónir, auk hlutfalls af næstu sölu og Lewis Orford.

Orford er 18 ára miðjumaður West Ham sem Aston Villa hefur fylgst með undanfarna mánuði. Orford leikur fyrir U18 landslið Englands og þykir mikið efni.

Villa telur hann þó ekki vera nægilega verðmætan fyrir þessi skipti og vill fá meiri pening með.

   25.07.2024 16:07
West Ham bætti tveimur milljónum við tilboðið

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner