Newcastle vill kaupa Elanga - Memphis til Corinthians - Barca ætlar að fá Nico Williams - Casemiro og Eriksen mega fara - Kovacic íhugar framtíð sína...
   fös 26. júlí 2024 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Yang kemur til Tottenham eftir áramót
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Suður-kóreski kantmaðurinn Yang Min-hyuk mun ganga til liðs við Tottenham eftir áramót samkvæmt heimildum Fabrizio Romano.

Tottenham er að ganga frá kaupum á leikmanninum frá Gangwon FC í heimalandinu.

Yang er 18 ára gamall og getur leikið á báðum köntum. Hann er kominn með 7 mörk og 3 stoðsendingar í 24 deildarleikjum á kóreska fótboltatímabilinu.

Yang fer í læknisskoðun á næstu dögum en búist er við að hann verði áfram hjá Gangwon þar til eftir áramót.

Yang er lykilmaður í U17 landsliði Suður-Kóreu og hefur í heildina spilað 21 unglingalandsleik þrátt fyrir ungan aldur.

Sóknarleikmaðurinn Son Heung-min, samlandi Yang, er fyrirliði Tottenham.

   24.07.2024 16:14
Tottenham að fá kóreskan táning

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner