Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fim 22. ágúst 2024 10:30
Brynjar Ingi Erluson
Fyrrum leikmaður Man Utd á leið til Leeds
Mynd: EPA
Largie Ramazani, leikmaður Almería á Spáni, er á leið til Leeds United fyrir 9,3 milljónir punda. Þetta kemur fram í New York Times og Sky.

Ramazani er 23 ára gamall sóknarmaður sem ólst upp hjá Manchester United, en hann lék einn leik með liðinu í Evrópudeildinni í nóvember 2019.

Hann yfirgaf United eftir tímabilið og samdi við Almería. Þar átti hann stóran þátt í að koma liðinu upp í La Liga.

Á tveimur tímabilum sínum í La Liga kom hann að þrettán mörkum, en liðið féll aftur niður um deild eftir síðustu leiktíð.

Hann er nú á förum frá félaginu en hann er nú á leið til Bretlandseyja til að ganga frá samningum við Leeds United.

Leeds hefur einnig áhuga á ungverska leikmanninum Roland Sallai, sem er á mála hjá Freiburg í Þýskalandi og Manuel Benson, leikmanni Burnley.
Athugasemdir
banner
banner
banner