Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fim 22. ágúst 2024 14:30
Elvar Geir Magnússon
Lookman til Arsenal?
Ademola Lookman er 26 ára.
Ademola Lookman er 26 ára.
Mynd: EPA
Ítalski íþróttafréttamaðurinn Alfredo Pedulla segir að Arsenal hafi gert tilboð í Ademola Lookman kantmann Atalanta.

Hann segir Arsenal hafa boðið 43 milljónir punda auk miðvarðarins Jakub Kiwior til að reyna að fá Lookman.

Þessi 26 ára leikmaður lék 36 leiki fyrir Everton milli 2017 og 2019 áður en hann fór til RB Leipzig. Þaðan var hann lánaður til Fulham og Leicester.

Nígeríski landsliðsmaðurinn var svo seldur til Atalanta þar sem hann hefur leikið 79 leiki og skorað 32 mörk. Hann vann Evrópudeildina með liðinu í maí.

Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain hafa sýnt honum áhuga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner