Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fim 22. ágúst 2024 09:25
Elvar Geir Magnússon
Ugarte þokast nær Man Utd - West Ham vill Soler
Powerade
Manuel Ugarte.
Manuel Ugarte.
Mynd: Getty Images
Carlos Soler.
Carlos Soler.
Mynd: EPA
Það er rúm vika í að glugganum verði lokað og ýmislegt spennandi í gangi á markaðnum. Hér er slúðurpakkinn, njótið.

Manchester United er að þokast nær samkomulagi um kaup á úrúgvæska miðjumanninum Manuel Ugarte (23) frá Paris St-Germain. (Sky Þýskalandi)

PSG er ekki tilbúið að lækka 51 milljón punda verðmat sitt á Ugarte. (Mirror)

Manchester United hefur boðist að fá enska varnarmanninn Ben Chilwell (27) frá Chelsea eftir að leikmanninum var tjáð að hann væri ekki í áætlunum stjóran Enzo Maresca. (Talksport)

West Ham vill fá spænska miðjumanninn Carlos Soler (27) frá Paris St-Germain en verður að selja leikmenn áður en félagið getur keypt. (Guardian)

Valentin Barco (20), varnarmaður Brighton, ætlar að ganga til liðs við Sevilla á láni en samningurinn um argentínska landsliðsmanninn felur ekki í sér möguleika á kaupum. (Fabrizio Romano)

Stjórnarmenn Napoli eru komnir aftur til Englands til að halda áfram viðræðum um möguleg félagaskipti fyrir Billy Gilmour (23), skoskan miðjumann Brighton, Romelu Lukaku (31), belgískan framherja Chelsea og Scott McTominay (27), skoskan miðjumann Manchester United. (Gianluca di Marzio)

Watford hefur samið við Bournemouth um að fá enska framherjann Daniel Jebbison (21) á lánssamningi út tímabilið. (Sky Sports)

Raheem Sterling (29), fyrrum framherji enska landsliðsins, vill vera áfram í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa verið sagt að hann eigi enga framtíð hjá Chelsea. (Sky Sports)

Barcelona er að íhuga að fá Federico Chiesa (26) framherja Juventus. (ESPN)

Charlie Patino (20) er nálægt því að vera keyptur frá Arsenal til Deportivo La Coruna. (Athletic)

Fulham hefur samið við Lyon um kaup á franska framherjanum Rayan Cherki (21). (L'Equipe)

Lyon hefur samþykkt tilboð upp á 16,7 milljónir punda frá Fulham í Cherki (Mail)
Athugasemdir
banner
banner
banner