Gomes efstur á óskalista Newcastle - Liverpool hefur einnig áhuga - Rætt um að stækka HM kvenna
   fim 22. ágúst 2024 19:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Valgeir Lunddal lagði upp en þurfti að fara af velli í kjölfarið
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valgeir Lunddal Friðriksson var í byrjunarliði sænska liðsins Hacken sem tapaði gegn þýska liðinu Heidenheim í fyrri leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildarinnar í kvöld.


Leikurinn fór fram á heimavelli Hacken. Gestirnir komust yfir en heimamenn voru ekki lengi að jafna, það gerði Mikkel Rygaard eftir undirbúning Valgeirs.

Valgeir þurfti hins vegar að fara af velli stuttu síðar en Heidenheim stóð uppi sem sigurvegari að lokum. 2-1 lokatölur.

Orri Steinn Óskarsson lék allan leikinn þegar FC Kaupmannahöfn vann skoska liði Kilmarnock 2-0 á heimavelli. Seinni leikirnir í Sambandsdeildinni fara fram eftir slétta viku.

Eggert Aron Guðmundsson og Andri Fannar Baldursson voru allan tíman á varamannabekknum þegar Elfsborg lagði Molde 1-0 á útivelli í undankeppni Evrópudeildairnnar. Seinni leikurinn fer fram eftir slétta viku, þann 29. ágúst.


Athugasemdir
banner
banner